Maintx Express er app fyrir skilvirkara viðhald
Um er að ræða þægilega og öfluga lausn, sem unnt er að nota hvar og hvenær sem er
Lykilþættir appsins
ViðhaldsbeiðniHér getur þú stofnað viðhaldsbeiðni og sent í aðalkerfi Maintx. Þú getur skrifað lýsingu eða valið staðlaða af lista og látið fylgja með skjöl og myndir sem útskýra beiðnina.
|
Loka verkiHér getur þú lokað verkum og skráð hvað var gert, skráð notuð aðföng og tíma sem fór í verkið, auk þess að setja inn myndir og skjöl. Allar aðgerðir vistast sjálfkrafa í aðalkerfi Maintx.
|
Skrá varahluti á verkHér getur þú skoðað varahluti sem búið er að úthluta á verk Þegar varahlutur hefur verið skráður í verkbeiðni og henni lokað þá uppfærist birgðastaða varahluta sjálfvirkt í appinu.
|
Varahlutir tengdir við tækiÍ Maintx eru unnt að tengja varahluti við viðeigandi tæki sem tryggir að þú hafir alltaf upplýsingar um réttu varahlutina fyrir tækið í appinu á vettvangi.
|
Skjöl og myndirÍ appinu hefur þú aðgang á þægilegan hátt að teikningum, skjölum, myndum, myndskeiðum og vefsíðum, sem unnt er að tengja við t.d. verk, tæki, varahluti, birgja og mæla.
|
MælitækiÍ appinu er unnt að skrá upplýsingar skv. mælitækjum. Þetta eykur skilvirkni fyrirbyggjandi viðhalds, þar sem skráningin fer sjálfkrafa á rétt verk í aðalkerfinu.
|
Mikill ávinningur
Styttri viðbragðstímiÞegar tilkynning um bilun berst úr Maintx Express eða verkbeiðni er uppfærð þá fá starfsmenn í viðhaldsdeild tilkynningu um það. Þeir geta því auðveldlega forgangsraðað áríðandi verkum. Þá er aðgangur að viðhaldssögu allra eigna til þess að auðvelda og hraða úrvinnslu verkefnisins.
|
Skilvirkari tilkynningarHver sem er í fyrirtækinu getur með Maintx Express sent tilkynningu um bilun (eða ábendingu) á eign til viðhaldsdeildar með skýringum, myndum og/eða myndböndum ef við á. Tilkynningunni er síðan breytt í verkbeiðni og úthlutað á viðhaldsaðila.
|
Minni niðritími eignaViðhaldsaðilar geta framkvæmt allt reglubundið fyrirbyggjandi viðhald á eignum og haldið utan um framvinduna í Maintx Express þó svo að nettengingu vanti. Þegar nettenging kemst aftur á þá uppfærast allar upplýsingar sjálfkrafa.
|
Betra kostnaðaryfirlitViðhaldsstarfsmenn halda utan um tíma og kostnað frá því að verkbeiðni er opnuð eða einhverjir varahlutir eru notaðir. Maintx Express veitir fyrirtækinu nákvæmar upplýsingar um umfang allra viðhaldsverkefna.
|