Miðlæg heildarlausn fyrir viðhald eigna
Með Maintx færðu betri stjórn á kostnaði, verkefnum, varahlutum og viðhaldssögu
EignastjórnunMeð Maintx heldur þú utan um á einum stað allar efnislegar eignir fyrirtæksins og tengsl þeirra, ásamt því að stjórna viðhaldi þeirra.
Með kerfinu færðu stjórn á viðhaldi eigna þinna og stöðu þeirra á líftíma þeirra. |
Fyrirbyggjandi viðhaldSérstök áhersla er á fyrirbyggjandi viðhald. Maintx veitir yfirsýn um alla þætti viðhaldsins á rauntíma og hver gerði hvað og hvenær.
Þegar kerfið hefur verið sett upp sér það um að sjálfvirkt virkja fyrirbyggjandi verk. |
VarahlutastjórnunMaintx er sniðið fyrir heildarumsjón varahluta og hagkvæmt birgðahald. Kerfið tryggir að nauðsynlegir varahlutir séu ávallt til reiðu.
Kerfið veitir þér nákvæma yfirsýn um birgðahald og notkun varahluta. |
VerkastjórnunHér getur þú á einum stað stýrt og fylgst með stöðu allra viðhaldsverka fyrirtækisins, hvort sem þau eru tilfallandi eða fyrirbyggjandi, þ.e. skipulögð eða endurtekin.
|
ViðhaldssagaKerfið heldur utan um allt sem gert er varðandi viðhald eigna. Upplýsingarnar eru alltaf aðgengilegar í viðhaldssögu þeirra. Unnt er að sía og flokka þær með ýmsum hætti.
|
Úrvinnsla gagnaKerfið gerir kleift að kalla fram margvíslegar staðlaðar skýrslur eða eftir vali, sem m.a. sýna fylgni við gæðastjórnunarstaðla, svo sem fastar úttektir og fyrirbyggjandi viðhaldsverk.
|
Ýmsir sameiginlegir þættir hugbúnaðarins
Samþáttun & viðmótHægt er að tengja og samþætta kerfið við annan hugbúnað t.d. mælitæki og fjárhagskerfi.
Aðgangur & umsjónUmsjónamenn og verkefnastjórar geta veitt aðgang eða takmarkað að aðgerðum og eru þær rekjanlegar.
|
Rekjanleiki aðgerðaKerfið heldur utan um hver gerði hvað og hvenær, sem er mikilvægt í vissu samhengi.
TækniMaintx notast við gagnagrunna frá Microsoft, þ.e. SQL Server og SQL Server Express.
|
TungumálKerfið er til á mörgum algengum tungumálum í dag. Auðvelt er að bæta við nýju tungumáli.
|