Maintx appið gengur á öll snjalltæki
Um er að ræða þægilega og öfluga snjalltækjalausn, sem unnt er að nota hvar og hvenær sem er
Lykilþættir appsins
ViðhaldsbeiðniHér getur þú stofnað viðhaldsbeiðni og sent í aðalkerfi Maintx. Þú getur skrifað lýsingu eða valið staðlaða af lista og látið fylgja með skjöl og myndir sem útskýra beiðnina.
|
Loka verkiHér getur þú lokað verkum og skráð hvað var gert, skráð notuð aðföng og tíma sem fór í verkið, auk þess að setja inn myndir og skjöl. Allar aðgerðir vistast sjálfkrafa í aðalkerfi Maintx.
|
Skrá varahluti á verkHér getur þú skoðað varahluti sem búið er að úthluta á verk Þegar varahlutur hefur verið skráður í verkbeiðni og henni lokað þá uppfærist birgðastaða varahluta sjálfvirkt í appinu.
|
Varahlutir tengdir við tækiÍ appinu eru unnt að tengja varahluti við viðeigandi tæki sem tryggir að þú hafir alltaf upplýsingar um réttu varahlutina fyrir tækið í appinu á vettvangi.
|
Skjöl og myndirÍ appinu hefur þú aðgang á þægilegan hátt að teikningum, skjölum, myndum, myndskeiðum og vefsíðum, sem unnt er að tengja við t.d. verk, tæki, varahluti, birgja og mæla.
|
MælitækiÍ appinu er unnt að skrá upplýsingar skv. mælitækjum. Þetta eykur skilvirkni fyrirbyggjandi viðhalds, þar sem skráningin fer sjálfkrafa á rétt verk í aðalkerfinu.
|
Mikill ávinningur fylgir notkun appsins
Styttri viðbragðstímiÞegar tilkynning um bilun berst úr Maintx appinu eða verkbeiðni er uppfærð þá fá starfsmenn í viðhaldsdeild tilkynningu um það. Þeir geta því auðveldlega forgangsraðað áríðandi verkum. Þá er aðgangur að viðhaldssögu allra eigna til þess að auðvelda og hraða úrvinnslu verkefnisins.
|
Skilvirkari tilkynningarHver sem er í fyrirtækinu getur með Maintx appið sent tilkynningu um bilun (eða ábendingu) á eign til viðhaldsdeildar með skýringum, myndum og/eða myndböndum ef við á. Tilkynningunni er síðan breytt í verkbeiðni og úthlutað á viðhaldsaðila.
|
Minni niðritími eignaViðhaldsaðilar geta framkvæmt allt reglubundið fyrirbyggjandi viðhald á eignum og haldið utan um framvinduna í Maintx appinu þó svo að nettengingu vanti. Þegar nettenging kemst aftur á þá uppfærast allar upplýsingar sjálfkrafa.
|
Betra kostnaðaryfirlitViðhaldsstarfsmenn halda utan um tíma og kostnað frá því að verkbeiðni er opnuð eða einhverjir varahlutir eru notaðir. Maintx appinu veitir fyrirtækinu nákvæmar upplýsingar um umfang allra viðhaldsverkefna.
|